Ljómandi tími fyrir bloggfærslu
12. febrúar 2008 klukkan 16:47
Stingandi hausverkur að gera mig geðveikan á þessum hundleiðinlega þriðjudegi. Hringdi mig inn veikan í fyrsta skipti í allri minni skólagöngu í FSu þrátt fyrir það ætla ég sð spila körfuboltaleik gegn UMFG í kvöld.
Já kominn tími á blogg? Er hér með formlega búinn að drulla þó nokkuð langa vegalengt upp að herðablöðum með þessa ágætu bloggsíðu mína. Er nú kominn tími á smá skriftir. Seinasta helgi var án alls vafa gífurlega skemtileg þar sem að á þorrablót í Logalandi var haldið með góðum drengjum, líkt og Hallgrími Pálma (sem er fluttur úr stofunni og var skarð hans fyllt með íturvöxnum manni sem ber nafnið Skúli Ingibergur Þórarinsson) Skúli, Arnar, Helgi, Sindri og Bjössi frændi Sindra voru svona helstu meðfarar menn á þessu skemmtilega balli ásamt þó mörgum öðrum. Endaði svo kvöldið með hvíslkjötsúpueftirpartíi að Fróðastöðum í Hvítársíðu. Alltaf jafn yndislegt að koma upp í sveit.
Alltaf er nú jafn gaman að enduruppgötva hljómsveitir var það nú hið magnaða band Skunk Anansie sem að skaut upp sköllótta svarta höfðinu. Fáránlega góð hljómsveit sem var með hina sjúklega hæfileikaríku Skin í fararbroddi. Ein af þeim fáu söngkonum sem að eru skemmtilegar þið afsakið alhæfinguna en því miður þá leiðist mér almennt söngkonur. Diskurinn Post Orgasmic chill er óneytanlega skemmtilegasta platan þeirra. Mæli með að fólk taki upp gömlu diskana sína með Skunk og byrji að hlusta aftur. Góður skítur þarna á ferð. Meira um tónlist þá stefni ég á tónleika með danska bandinu Munich á Gauknum eftir hálfan mánuð. Ætla ekki að missa af öðrum stórum tónleikum. Þar sem að ég grét mig í svefn í fósturstellingunni þar síðasta laugardag þegar að ég náði ekki að komast á I Adapt en þið vitið lífið sígur rass.

Er að lesa ágætis bók þessa dagana í ensku The Curious Incident Of The Dog In The Night Time eftir Mark Haddon. Klassísk bók sem að er að koma skemmtilega á óvart. Núna þegar að ég er að lesa meira en ég gerði er mér farið að langa meira og meira að skrifa mína eigin bók eða kannski ekki bók heldur sögu. Er búinn að pára upp nokkrar hugmyndir og mér líst bara ágætlega á sumt af þessu rusli. Hver veit rithöfundurinn Hilmar Guðjónsson "it has a ring to it". En atvinnuknattspyrnu maðurinn Hilmar Guðjónsson var líka í þó nokkurn tíma í loftinu.
Bið að heilsa ykkur góða fólk og líka hinu fólkinu, ætla ég nú að reyna að lífga þessa ágætu veraldarvefsbók til lífsins og auka skriftir mínar.
Hilmar...

Hilmar Guðjónsson
Tónlist |
Tónlist |

og hey ég var að fatta; ÞÚ MISSTIR AF ISIS OG I ADAPT. hí á þig. núna hef ég grínspaðann endalaust upp í erminni á þig.