Skjávarpi heila míns
23. apríl 2008 klukkan 01:24
Þetta tels nú varla sem blogg færsla. Það er allavega komið í ljós að ég er að öllum líkindum óneytanlega lélegasti bloggari sögunnar. Allir mínir unaðslegu lesendur hafa yfirgefið mig, leitað á önnur mið í blogg-heimum. Þá get ég varið að blogga fyrir sjálfan mig ætli það geti ekki bara verið meira gamann. Líður skringilega þessa kvöld stund fyrsta leiktímabil mitt með FSu er að líða undir lok og mun klárast á sunnudaginn ef að við höfum karlmannsbolta til að vinna KR í undanúrslitum á föstudaginn, annars þá. Þetta er vægast sagt búið að vera magnað ár þvílíkar breytingar í tilveru minni! Greinilegt að þau ár sem að enda á tölunni sjö eru þau veigamestu í lífi mínu. Get ekki annað sagt en að ég hlakki til sumarsinns, síðasta sumar var það allra skemtilegasta sem hefur rekið á fjörur mínar hingað til og hver veit hvað það á eftir að bera í skauti sér. Horfði á myndina Almost Famous aftur núna fyrir stuttu síðan. Set inn atriði sem að lýsir lífi mínu í dag svo algerlega. Veit ekki allveg hvar "heima" er, en svarið er ekki flókið "heima" er þar sem að fólkið sem að þér þykir vænt um er staðsett. Hvort sem það er á Selfossi, Hornafirði, Borgarfirði eða jafnvel í rútu. Já elskurnar hipps um happs um heiminn í leit að tilgangi, staðfestu og þörf. Skora á ykkur öll sömul til að skoða eftirfarandi myndbrot það á svo vel við í kvöld að það líkist skjávarpa af heilanum í mér.
P.s. Strákar næsta roadtrip verður unaðslegt, get ekki beðið!
Hilmar...
P.s. Strákar næsta roadtrip verður unaðslegt, get ekki beðið!
Hilmar...


ég hef sko ekki yfirgefið þig ;)